Það vantaði ekki fjörið í 3:3-jafntefli Limhamn Bunkeflo og Kristianstad í efstu deild sænsku deildarinnar í fótbolta í dag, en þrír Íslendingar léku í leiknum.
Anna Björk Kristjánsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Bunkeflo og Rakel Hönnudóttir fyrstu 80 mínúturnar. Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir Kristianstad. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad og Björn Sigurbjörnsson er aðstoðarþjálfari.
Kristianstad er með tvö stig eftir tvær umferðir og Linhamn Bunkeflo er með eitt stig.