Diego Simeone, knattspyrnustjóri Atlético Madrid, verður í stúkunni þegar lærisveinar hans mæta Marseille í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Evrópska knattspyrnusambandið kærði Simeone fyrir hegðun sína í leik Atlético gegn Arsenal á dögunum og hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að úrskurða hann í fjögurra leikja bann frá hliðarlínunni. Ber honum einnig að greiða um eina milljón króna í sekt.
Félagið sjálft var einnig sektað um sömu upphæð fyrir hegðun stuðningsmanna þess í síðari leik liðsins gegn Arsenal.