Nantes vann 1:0-heimasigur á Strasbourg í lokaumferð frönsku A-deildarinnar í fótbolta í dag. Kolbeinn Sigþórsson var á meðal varamanna Nantes í leiknum og lék síðasta korterið.
Kolbeinn lék átta mínútur í síðasta leik og er að komast af stað eftir meiðsli sem voru nálægt því að binda enda á ferilinn hans. Nantes endar í 9. sæti deildarinnar með 52 stig.
Leikirnir tveir sem Kolbeinn lék í síðustu tveimur umferðunum eru þeir fyrstu sem hann leikur með félagsliði síðan árið 2016.