Kjartan Henry Finnbogason og félagar í ungverska stórliðiðinu Ferencváros hófu leik í efstu deildinni í knattspyrnu í dag á 4:1-sigri á heimavelli gegn Diósgyör.
Heimamenn sáu alfarið um mörkin áður en Kjartan kom inn á. Fyrst skoruðu gestirnir sjálfsmark snemma leiks áður en Marcel Heister tvöfaldaði forystuna. Patrik Bacsa minnkaði muninn á 45. mínútu en þó var tími fyrir Roland Varga til að endurheimta tveggja marka forystu Ferencváros fyrir hálfleik.
Varga bætti svo við öðru marki sínu á 69. mínútu og á þeirri 81. kom Kjartan Henry loks inn á fyrir einmitt Varga.
Ferencváros hafnaði í öðru sæti deildarinnar í fyrra, tveimur stigum frá ungversku meisturunum Videoton, en hefja tímabilið í ár á fínum sigri.