Barcelona verður án Luis Suárez þegar liðið tekur á móti Tottenham í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.
Suárez meiddist í 4:0-sigri Börsunga gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni um helgina, en hann skoraði einnig í leiknum. Eru meiðslin í hné og greinir Sky frá því að hann verði frá næstu tvær vikurnar.
Barcelona hefur þegar tryggt sæti sitt upp úr B-riðli keppninnar, en Tottenham og Inter berjast um að fylgja þeim áfram. Vinni Tottenham er liðið öruggt áfram á meðan Inter, sem mætir PSV, þarf að treysta á að lærisveinar Mauricio Pochettino misstígi sig á Nývangi.