Sveinn Aron Guðjohnsen lét heldur betur kveða að sér þegar hann fékk sitt fyrsta tækifæri með liði Spezia í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu eins og fram kom á mbl.is í dag.
Sveinn Aron lék síðasta hálftíma leiksins. Hann kom inná þegar Spezia var 1:0 undir en hann lagði upp jöfnunarmarkið og skoraði sigurmarkið með góðu skallamarki eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.