Evrópu- og Þýskalandsmeistarar Bayern München bættu enn einum titlinum í safnið í kvöld þegar þeir sigruðu Evrópudeildarmeistara Sevilla frá Spáni, 2:1, í framlengdum leik um Meistarabikar Evrópu í Búdapest.
Spánverjarnir komust yfir þegar Lucas Ocampos skoraði úr vítaspyrnu á 13. mínútu en Leon Goretzka jafnaði fyrir Bayern á 34. mínútu eftir sendingu frá Robert Lewandowski.
Staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma en undir lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar skoraði Javier Martínez sigurmark Bayern, 2:1.
Leikið var frammi fyrir 20 þúsund áhorfendum á Puskas Arena.