Manchester United sigraði Granada frá Spáni 2:0 í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í kvöld. United sigraði samanlagt 4:0 og er komið í undanúrslit.
United mætir Roma í undanúrslitum keppninnar en Roma sló Ajax út í kvöld.
Manchester United vann fyrri leikinn 2:0 á Spáni og var því í góðri stöðu. Staðan varð fljótt enn betri því Edinson Cavani skoraði laglegt mark á 6. mínútu. Fyrirliðinn Paul Pogba skallaði boltann aftur fyrir sig eftir fyrirgjöf frá vinstri. Pogba skallaði beint á Cavani sem tók boltann á lofti í teignum og sendi boltann í hægra hornið.
Síðara markið kom á 90. mínútu og var sjálfsmark eftir fyrirgjöf Telles frá vinstri.
Edinson Cavani skoraði fimmtugasta mark sitt í Evrópuleikjum félagsliða í kvöld og er fyrsti leikmaðurinn frá Úrúgvæ til að ná því. Hefur hann jafnframt skorað í Evrópuleikjum ellefu tímabil í röð.