Hættir eftir tímabilið

Casey Stoney, knattspyrnustýra Manchester United, gefur framherjanum Lauren James leiðbeiningar.
Casey Stoney, knattspyrnustýra Manchester United, gefur framherjanum Lauren James leiðbeiningar. James Boyes

Casey Stoney, knattspyrnustýra kvennaliðs Manchester United í knattspyrnu, mun láta af störfum þegar tímabilinu lýkur í sumar.

Ensku úrvalsdeildinni er lokið, þar sem Chelsea varð meistari og Man. Utd lenti í fjórða sæti, og missti þannig naumlega af Meistaradeildarsæti.

Þó deildinni sé lokið er ennþá nokkrum umferðum ólokið í ensku bikarkeppninni. 16-liða úrslitin hefjast á sunnudaginn, þar sem Man. Utd tekur á móti Leicester City. Stoney mun því stýra liðinu á meðan það er enn í keppninni.

Stoney hefur stýrt Man. Utd síðustu þrjú tímabil. „Þetta er rétti tíminn til þess að draga sig í hlé og leyfa einhverjum öðrum að koma inn og stýra liðinu á næsta stigi vegferðarinnar sem það er á,“ sagði hún í samtali við Sky Sports.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert