Jónatan Ingi Jónsson, fyrrverandi leikmaður FH, er í úrvalsliði áttundu umferðar í norsku B-deildinni í knattspyrnu hjá norsku fréttastofunni NTB.
Jónatan Ingi skoraði eitt marka Sogndal þegar liðið vann Stjördals Blink 3:1 á útivelli í gær en það var hans annað mark fyrir liðið í fyrstu átta umferðum deildarinnar.
Sogndal er í sjötta sæti af sextán liðum í deildinni en með liðinu leika einnig þeir Valdimar Þór Ingimundarson og Hörður Ingi Gunnarsson. Þeir komu allir til félagsins í vetur.
🔥 RUNDENS LAG 🔥
— NTBnifs (@NTBnifs) May 27, 2022
Disse 11 presterte best på NTB-børsen i den åttende runden i @obosligaen
Hele ni lag er representert dennne runden! 💪#ntbbørsen #obosligaen pic.twitter.com/W8bENyhaLx