Svava Rós Guðmundsdóttir, landsliðskona í fótbolta, mun væntanlega ekki ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham.
Amanda Zaza, blaðakona hjá Fotbollskanalen í Svíþjóð, greinir frá að Svava hafi verið nálægt því að ganga í raðir Lundúnafélagsins en viðræðurnar hafi runnið út í sandinn.
Hún greinir frá að sóknarkonan hafi rætt við bandarísk félög, eftir að í ljós kom að hún myndi ekki verða liðsfélagi Dagnýjar Brynjarsdóttur, fyrirliða West Ham.
Svava yfirgaf norska félagið Brann á dögunum, en hún varð Noregsmeistari með liðinu á síðustu leiktíð.
🚨We believe Svava Ros Gudmundsdottir was close to agreeing a contract with West Ham but deal expected to fall through unless very late changes. Player has since been in conversation with a club in the NWSL [with @em_sandy] pic.twitter.com/KEVuwfn4ZQ
— Amanda Zaza (@amandaezaza) January 27, 2023