Flugu áfram í undanúrslitin

Þorleifur Úlfarsson í leik með íslenska U21-árs landsliðinu á síðasta …
Þorleifur Úlfarsson í leik með íslenska U21-árs landsliðinu á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorleifur Úlfarsson og liðsfélagar hans í Houston Dynamo áttu ekki í neinum vandræðum með Chicago Fire þegar liðin áttust við í átta liða úrslitum bandarísku bikarkeppninnar í knattspyrnu karla í nótt.

Lauk leiknum, sem fór fram í Chicago, með öruggum sigri Houston, 4:1.

Þorleifur kom inn á sem varamaður á 72. mínútu hjá Houston, þegar staðan var 3:1.

Skömmu síðar bættu gestirnir við fjórða markinu og fóru þar með örugglega í undanúrslit bikarkeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert