Glæsilegt mark landsliðsmannsins (myndskeið)

Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði í kvöld.
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði í kvöld. Ljósmynd/Düsseldorf

Düsseldorf hafði betur gegn Nürnberg í B-deild þýska fótboltans í kvöld. Urðu lokatölur 3:1.

Ísak Bergmann Jóhannesson byrjaði á bekknum hjá Düsseldorf og kom inn á sem varamaður á 59. mínútu. Rúmum tíu mínútum síðar skoraði hann þriðja mark Düsseldorf með fallegu langskoti.

Düsseldorf er í þriðja sæti með 59 stig eftir 32 leiki og í hörðum slag um sæti í efstu deild Þýskalands.  

Mark Ísaks má sjá hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert