Akureyringar með sex stiga forskot

Heiðar Kristveigarson skoraði annað mark SA í kvöld.
Heiðar Kristveigarson skoraði annað mark SA í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skautafélag Akureyrar er með sex stiga forskot  á toppi Hertz-deildar karla í íshokkí eftir 3:1-sigur gegn Skautafélagi Reykjavíkur í Laugardalnum í gær. SA byrjaði leikinn af krafti og Jóhann Leifsson kom SA yfir eftir 20 sekúndna leik.

Heiðar Kristveigarson tvöfaldaði forystu SA undir lok fyrsta leikhluta áður en Níels Hafsteinsson
minnkaði muninn fyrir SR. Það var svo Björn Jakobsson sem skoraði þriðja mark SA undir lok annars leikhluta.

SA er með 24 stig á toppi deildarinnar, sex stigum meira en Fjölnir sem er í öðru sætinu. SR rekur lestina án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert