Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson frá Víkingi vann í dag sigur í svigkeppni Evrópumótaraðar IPC sem nú stendur yfir í Zagreb í Króatíu.
Hilmar var með samanlagðan tíma upp á 1:44,60 mín. og var rétt á undan Austurríkismanninum Thomas Grochar sem lauk keppni á 1:45,00 mín.
Aðstæður í Zagreb voru nokkuð krefjandi en það er lítill snjór í fjöllunum og á meðan seinni ferð dagsins stóð í dag gerði talsverða rigningu með þrumuveðri.
Á morgun er frídagur hjá Hilmari en á föstudag og laugardag er stefnan sett á að keppa í svigi og stórsvigi og þannig ljúka Evrópumótaröðinni í tæknigreinum en eins og sakir standa er það aðstæðum háð hvort svig eða stórsvig verði á undan á föstudag.
Um þessar mundir er Hilmar Snær í forystunni á Evrópumótaröðinni í svigi og samanlögðu og er í 2. sæti í stórsvigi.