Fyrsta heimakonan í úrslit í 42 ár

Ashleigh Barty er komin í úrslit á heimavelli.
Ashleigh Barty er komin í úrslit á heimavelli. AFP

Hin ástralska Ashleigh Barty er búin að tryggja sér sæti í úrslitum Opna ástralska mótsins í tennis eftir að hún hafði betur gegn Bandaríkjakonunni Madison Keys í dag.

Barty er þar með fyrsti tennisleikarinn frá Ástralíu sem kemst í úrslit á Opna ástralska í 42 ár og gæti orðið fyrsti Ástralinn til þess að vinna á heimavelli síðan Christine O’Neil gerði það fyrir 44 árum.

Barty, sem vann Wimbledon-mótið á síðasta ári, hafði betur gegn Keys í dag með því að vinna fyrsta sett 6:1 og annað sett 6:3 og viðureignina þar með 2:0.

Í úrslitaleiknum á laugardag mun hún mæta annað hvort Igu Swiatek frá Póllandi eða Danielle Collins frá Bandaríkjunum, en þær etja kappi síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert