Sigurþór á meðal efstu manna - Örn Ævar úr leik

Sigurþór Jónsson.
Sigurþór Jónsson. mbl.is/seth@mbl.is/golf@mbl.is

Örn Ævar Hjartarson úr GS lék á 79 höggum á öðrum keppnisdegi á úrtökumóti fyrir sænsku atvinnumótaröðina og er hann samtals á 18 höggum yfir pari eftir að hafa leikið á 83 höggum í gær. Örn Ævar er í 47. - 55. sæti af alls 84 keppendum á Elisafarm vellinum en hann er úr leik og fær ekki að leika á lokadeginum á morgun. Sigurþór Jónsson úr GR er hinsvegar búinn að tryggja sér keppnisrétt á næsta ári á sænsku mótaröðinni en hann er í 2.-3. sæti á Elisafarm vellinum á samtals 3 höggum yfir pari. Hann lék á pari vallar í dag og þremur höggum yfir pari í gær.

Staðan á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert