Guðrún Brá valin í Evrópuliðið

Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Guðrún Brá Björgvinsdóttir Ljósmynd/Golf.is

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili var valin í Evrópuliðið í golfi sem keppir í Patsy Hankins-bikarnum 8.-10. mars. Mótið fer fram í Katar. „Það er mikill heiður að vera valin í þetta lið og ég er mjög spennt fyrir komandi verkefni,“ segir Guðrún Brá á Facebook-síðu sinni.

Í Patsy Hanking mótinu keppa tvö lið skipuð áhugakylfingum, lið Evrópu mætir sameiginlegu liði leikmanna frá Asíu og Kyrrahafseyjum. Mótið stendur yfir í þrjá daga og eru alls tólf leikmenn í hvoru liði. Keppnisfyrirkomulagið er með svipuðu sniði og þekkist í Ryder-bikarnum og Solheim-bikarnum.

Mótið er tileinkað Patsy Hankinss sem fæddist árið 1945 en hún lést árið 2015. Hún var frumkvöðull í kvennagolfinu í Nýja-Sjálandi.

Hér má sjá Evrópuliðið.
Hér má sjá Evrópuliðið. Ljósmynd/GSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert