Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir sigraði í kvennaflokki í KPMG-Hvaleyrarbikarnum, sem er hluti af Eimskipsmótaröðinni í golfi, með yfirburðum í dag.
Guðrún, úr GK, lék þriðja og síðasta hringinn í dag á einu höggi yfir pari eða 72 höggum og hringina þrjá því samtals á fjórum höggum yfir. Hún var því sex höggum á undan Berglindi Björnsdóttur úr GR sem varð önnur á tíu höggum yfir samanlagt.
Anna Sólveig Snorradóttir úr GK varð svo þriðja. Hún lék hringinn í dag á 73 höggum eða tveimur yfir og var samtals 13 höggum yfir pari.
Guðrún Brá er þar með búin að vinna bæði mótin sem hún hefur keppt í á Eimskipsmótaröðinni á árinu.