Nýr afreksstjóri Golfsambandsins

Brynjar Eldon Geirsson og Gregor Brodie.
Brynjar Eldon Geirsson og Gregor Brodie. Ljósmynd/seth@golf.is

Golfsamband Íslands hefur ráðið nýjan afreksstjóra en mikill áhugi var á starfinu og sóttu 40 aðilar um það, þar af 32 erlendir aðilar.

Englendingurinn Gregor Brodie hefur nú verið ráðinn en hann er 44 ára gamall og með mikla reynslu og menntun á mörgum sviðum golfíþróttarinnar, að því er fram kemur á vef GSÍ. Brodie tekur við af Finnanum Jussi Pitkänen sem var afreksstjóri GSÍ frá byrjun árs 2017 en hefur nú verið ráðinn til Golfsambands Finnlands.

Brodie hefur mikla reynslu af þjálfun afrekskylfinga og hefur þjálfað atvinnukylfinga á Evrópumótaröðum karla og kvenna auk áhugakylfinga í fremstu röð á heimsvísu.

„Mér er sýndur mikill heiður“

„Mér er sýndur mikill heiður að fá tækifæri að takast á við þetta áhugaverða starf. Ég er gríðarlega spenntur að hefja þessa vegferð og byggja upp eitthvað sérstakt á komandi árum,“ segir Brodie.

„Ég hef unnið með kylfingum sem koma frá fámennum þjóðum og tekið þátt í því að ná með þeim framúrskarandi árangri. Slík samvinna hefur skilað af sér Evróputitli.

Eitt af stóru verkefnunum fyrir mig er að byggja ofan á það góða starf sem forverar mínir hafa unnið á undanförnum árum. Við eigum að tileinka okkur hugarfar sigurvegarans enn frekar, þora að vera framúrskarandi og takast á við krefjandi verkefni með opnum huga.

Ég tek við góðu búi af forvera mínum, Jussi Pitkänen, sem skilaði af sér frábæru starfi. Ég mun ekki breyta miklu. Þess í stað mun ég nýta þann grunn sem er til staðar og þróa starfið enn frekar – og ég er með margar hugmyndir um hvernig við getum gert það.

Fyrst um sinn mun ég afla mér upplýsinga um hvernig staðan er – og meta síðan út frá hvernig forgangsröðunin verður, og á hvað ég mun leggja mesta áherslu.

Eins og áður segir er ég glaður og ánægður að fá þetta tækifæri. Verkefnið mitt er að aðstoða alla þá sem koma að afreksstarfinu og að Ísland nái enn lengra í golfíþróttinni á komandi árum,“ segir Brodie.

Fáum virkilega metnaðarfullan og hæfan einstakling

Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ, gleðst yfir ráðningunni:

„Ég er ánægður með niðurstöðuna eftir faglegt ráðningarferli og tel að með ráðningu Gregor Brodie munum við fá virkilega metnaðarfullan og hæfan einstakling til þess að leiða afreksmál GSÍ. Gregor Brodie hefur víðtæka reynslu á mörgum sviðum sem mun nýtast okkur vel á vegferð okkar við að fylgja eftir afreksstefnu GSÍ og styðja við íslenska afrekskylfinga og landslið Íslands. Ég hlakka til að bjóða hann velkominn til starfa og fá hann til liðs við okkur hjá GSÍ,“ segir Brynjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert