Franski línumaðurinn Ludovic Fábregas er orðinn samherji Arons Pálmarssonar hjá spænska meistaraliðinu Barcelona.
Fábregas var kynntur til leiks hjá Katalóníuliðinu í dag en hann kemur til þess frá franska liðinu Montpellier en Fábregas hampaði Evrópumeistaratitlinum með félaginu í vor.
Fábregas er 20 ára gamall og varð heimsmeistari með Frökkum á heimavelli á síðasta ári. Hann er stór og sterkur línumaður og afar öflugur varnarmaður og var útnefndur bæði besti línumaðurinn og varnarmaðurinn í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
„Ég er mjög ánægður og stoltur að hefja þennan nýja kafla og ég held að ég geti gert góða hluti með þessu frábæra liði,“ segir Fábregas á vef Barcelona.