Sandra Erlingsdóttir og Lovísa Thompson eru á meðal þeirra markahæstu á heimsmeistaramóti U20 ára liða í handknattleik sem nú stendur yfir í Debrecen í Ungverjalandi.
Riðlakeppninni lauk á sunnudaginn og í dag hefjast 16-liða úrslitin þar sem Íslendingar mæta Norðmönnum.
Sandra er í 5.-8. sæti yfir markahæstu leikmenn á mótinu en hún hefur skorað 29 mörk í fimm leikjum íslenska liðsins. Lovísa hefur skorað 28 mörk og er í 9. sæti yfir markahæstu leikmenn. Helena Gilda Simao frá Angóla er markahæst með 56 mörk og næst á eftir henni kemur Dione Housheer frá Hollandi sem hefur skorað 43 mörk.