Markaðsstjóri HSÍ lætur af störfum

Bjarki Sigurðsson.
Bjarki Sigurðsson. Ljósmynd/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Bjarki Sigurðsson mun láta af störfum sem markaðsstjóri Handknattleikssambands Íslands og hverfa til nýrra verka. Þetta kemur fram á vef HSÍ.

Bjarki, sem er fyrrverandi leikmaður Vals og landsliðsins, tók við starfi markaðsstjóra HSÍ í september á síðasta ári.

„Við viljum þakka Bjarka fyrir vel unnin störf og koma á framfæri óskum um velfarnað í nýju starfi. Starfsemi HSÍ heldur áfram að vaxa og handboltinn er svo sannarlega í sókn,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, á vef þess.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir en umsóknarfrestur rennur út 24. september og skal senda umsóknir um starfið á netfangið robert@hsi.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert