Dregið var í 16-liða úrslitum Coca-Cola-bikars karla í handknattleik í hádeginu þar sem ríkjandi bikarmeistarar ÍBV drógust á móti Gróttu á heimavelli.
Stórleikur umferðarinnar verður viðureign Hauka og Aftureldingar sem mætast í Schenker-höllinni og þá eigast við Fram og Selfoss í Safamýri.
Drátturinn varð þessi:
Víkingur - FH
HK - Valur
Valur 2 - Fjölnir
ÍBV - Grótta
ÍBV 2 - ÍR
Mílan - Þróttur
Haukar - Afturelding
Fram - Selfoss
Leikirnir fara fram 12. og 13. desember.