Rut skoraði tvö

Rut Jónsdóttir var með frábæra skotnýtingu gegn Magura Cisnadiei í …
Rut Jónsdóttir var með frábæra skotnýtingu gegn Magura Cisnadiei í EHF-bikarnum í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Handknattleikskonan Rut Jónsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Esjberg þegar liðið vann stórsigur gegn Magura Cisnadiei í EHF-bikarnum í dag í Danmörku en leiknum lauk með 41:18-sigri Esjberg.

Esjberg byrjaði leikinn af miklum krafti og var staðan í hálfleik 21:8, Esjberg í vil. Rut skoraði tvö mörk úr tveimur skotum og átti góðan leik en Esjberg er í efsta sæti A-riðils eftir fyrstu umferð riðakeppninnar með 2 stig.

Næsti leikur Esjberg í EHF-bikarnum er gegn Storhamar 13. janúar í Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert