Norska kvennalandsliðið í handbolta vann sannfærandi 31:20-sigur á Danmörku í fyrsta leik gulldeildarinnar í Frakklandi. Staðan í hálfleik var 15:7, Noregi í vil, en Þórir Hergeirsson þjálfar norska liðið.
Stine Bredal Oftedal var markahæst í norska liðinu með fimm mörk og þær Emilie Arntzen, Helena Fauske, Silje Waade og Malin Aune skoruðu allar fjögur mörk. Stine Jørgensen og Kathirine Heindahl voru markahæstar í danska liðinu með fjögur mörk.
Mótið fer fram í Clermont í Frakklandi. Heimakonur leika með Noregi, Danmörku og Rúmeníu á mótinu. Næsti leikur Noregs er einmitt á móti Rúmeníu á laugardaginn kemur.