Gabríel Martinez Róbertsson, hornamaðurinn knái í handboltaliði ÍBV, er búinn að framlengja samning sinn við félagið.
Gabríel, sem kom sterkur inn í byrjunarlið Eyjamanna á síðustu leiktíð þegar þeir glímdu við meiðsli, hefur skrifað undir samning sem gildir út tímabilið 2023.
Gabríel Martinez hefur skorað tólf mörk í sex leikjum ÍBV í Olís-deildinni á þessu tímabili en Eyjamenn eru í fjórða sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Hauka.