Aron Pálmarsson og samherjar hans hjá Barcelona fara vel af stað í spænsku A-deildinni í handbolta á leiktíðinni en liðið vann 39:22-heimasigur á Nava í dag.
Aron skoraði eitt mark fyrir Barcelona. Var staðan í hálfleik 20:12. Hafa yfirburðir Barcelona í spænskum handbolta síðustu ár verið miklir og er liðið með 46 mörk í plús eftir þrjá leiki.
Barcelona fær erfiðari leik næstkomandi fimmtudag þegar Celje Lasko kemur í heimsókn í Meistaradeild Evrópu.