Valsararnir Róbert Aron Hostert og Þorgils Jón Svölu-Baldursson eru báðir að glíma við meiðsli og því tæpir fyrir leik Hauka og Vals í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, en þetta kom fram á handbolti.is.
Liðin mætast á Ásvöllum 2. október í 4. umferð deildarinnar en Róbert Aron er að glíma við tognun aftan í læri og þá meiddist Þorgils Jón á hné í leik Vals og ÍBV á Hlíðarenda í síðustu umferð.
Óvíst er hversu lengi það mun taka leikmennina að jafna sig en Valur fær Þór frá Akureyri í heimsókn í 5. umferð deildarinnar 10. október.
Valsmenn eru með 4 stig í í fjórða sæti deildarinnar en Haukar eru á toppnum með 6 stig eða fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki sína.