Ómar Ingi Magnússon var markahæstur þegar Magdeburg tryggði sér þriðja sætið í þýsku bundesligunni í handknattleik í dag.
Magdeburg gerði jafntefli 27:27 gegn Wetzlar á heimavelli og er þremur stigum á undan Füchse Berlín þegar lokaumferðin er eftir. Ómar skoraði 8 mörk og gaf eina stoðsendingu fyrir Magdeburg.
Kiel er í efsta sæti með 67 stig eftir sigur gegn Lemgo 33:23. Bjarki Már Elísson var markahæstur hjá Lemgo með 7 mörk. Kiel er stigi á undan Flensburg sem Alexander Petersson leikur með.
Rhein Neckar Löwen er í 5. sæti og getur náð fjórða sætinu í lokaumferðinni ef Berlínarliðið misstígur sig. RN Löwen vann Essen 33:23 á útivelli en Ýmir Örn Gíslason lék í vörn Löwen í leiknum.
Göppingen vann Coburg 37:29 en Gunnar Steinn Jónsson var ekki á meðal markaskorara hjá Göppingen.