Bjarki Már Elísson átti góðan leik fyrir Veszprém þegar liðið vann þriggja marka sigur gegn Dinamo Búkarest í A-riðli Meistaradeildar karla í handknattleik í Ungverjalandi í dag.
Leiknum lauk með 33:30-sigri Veszprém en Bjarki Már var næstmarkahæstur í ungverska liðinu með fjögur mörk.
Veszprém er með 6 stig eða fullt hús stiga í efsta sæti A-riðils eftir fyrstu þrjár umferðirnar.