Hef mikla trú á að ég nái HM

Benedikt Gunnar Óskarsson telur líklegt að hann nái HM.
Benedikt Gunnar Óskarsson telur líklegt að hann nái HM. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valsarinn Benedikt Gunnar Óskarsson var valinn besti sóknarmaður Olísdeildarinnar í handknattleik á verðlaunaafhendingu HSÍ í Minigarðinum í Skútuvogi í dag. 

Benedikt sagði í samtali við mbl.is að hann væri mjög sáttur með verðlaunagripinn. „Þetta var fínt ár hjá mér og það er geggjað að fá einhverja viðurkenningu fyrir það.“

Valsarinn ungi meiddist illa á nára í heimaleik liðsins gegn Göppingen í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í mars og spilaði ekkert með Val í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn. 

Vegna meiðsl­anna rík­ti einnig óvissa um þátt­töku hans með ís­lenska U21-árs landsliðinu á HM 2023 í Þýskalandi og Grikklandi í sum­ar, en mótið hefst þann 20. júní næst­kom­andi. 

Benedikt segist þó vera bjartsýnn á að ná heimsmeistaramótinu, en hann náði sinni fyrstu æfingu frá meiðslunum í gær. 

„Ég tók mína fyrstu æfingu í gær eftir tvo og hálfan mánuð. Æfingin var bara fín og stefnan er að ná HM 20. júní.“

Hverjar eru líkurnar á það gerist?

„Ég tel vera mjög góðar líkur á því. Ég og sjúkraþjálfarinn minn höldum að ég nái þessu og ég hef mikla trú á því,“ sagði Benedikt að lokum í samtali við mbl.is.

Benedikt Gunnar Óskarsson heldur sárþjáður um nárann í leik Vals …
Benedikt Gunnar Óskarsson heldur sárþjáður um nárann í leik Vals gegn Göppingen þann 21. mars síðastliðinn. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert