Björninn/SR og Ynjur buðu upp á markaveislu er þau mættust í Hertz-deild kvenna í íshokkí í dag. Svo fór að Ynjur höfðu betur, 13:7. Mikið jafnræði var með liðunum í 1. leikhluta en eftir hann voru Ynjur yfir, 6:5.
Ynjur náðu betri tökum á leiknum í 2. leikhluta og var staðan 10:6 fyrir síðasta leikhlutann. Ynjur unnu þriðja leikhluta 3:1 og leikinn 13:7.
Sunna Björgvinsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Ynjur og Sara Sigurðardóttir gerði þrjú. Hjá Birninum/SR voru þær Harpa Kjartansdóttir og Sigrún Árnadóttir með tvö mörk hvor.
Með sigrinum minnkuðu Ynjur forskot Ásynja á toppnum niður í eitt stig en Björninn/SR er enn án stiga.