„Mér finnst fallegt að horfa á lið halda liðinu í öðru sæti í deildinni í 28 stigum yfir þrjá leikhluta,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 64:57-heimasigur á ÍR í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í kvöld. Það er nú jafnt á milli liðanna í einvíginu, 1:1, en næst mætast þau í Seljaskóla á fimmtudaginn kemur.
ÍR-ingum tókst ekki að skora meira en tíu stig í tveimur leikhlutum og var Hrafn gífurlega ánægður með varnarleik sinna manna.
„Þeir stökkva á okkur í öðrum leikhluta, skora 29 stig, en svo 28 samanlagt í hinum hlutunum. Varnarleikurinn hjá okkur var frábær og auðvitað er hægt að halda því fram að sóknarleikurinn eigi að vera betri. Við vorum að fá opin færi og klikka á þeim en við höldum bara áfram að fá þessi færi og hlæjum að því hvað þetta hefur gengið illa hingað til. Stíflurnar bresta á endanum, við förum að hitta úr skotum og þá verðum við í góðum málum.“
Stjarnan var undir fyrir fjórða og síðasta leikhlutann en þá stigi menn upp. Eysteinn Bjarni Ævarsson var til að mynda með ekkert stig á þeim tímapunkti en skoraði svo tvær þriggja stiga körfur sem fóru langleiðina með að tryggja Stjörnunni sigurinn.
„Leikmenn sem voru ekki búnir að vera hitta allan leikinn setja stór skot í fjórða leikhluta. Við héldum trúnni á verkefninu og héldum bara áfram, sama hvernig staðan er þá erum við lið til að rífa okkur upp.“
Hrafn fagnaði innilega með stuðningsmönnum Stjörnunnar við leikslok og féll það illa í kramið hjá Borche Ilievski, þjálfara ÍR, sem las Hrafni pistilinn eftir á. Hann bað kollega sinn afsökunar fyrir stundarbrjálæðið.
„Ég átti þann pistil bara fyllilega skilið. Þegar maður er í úrslitakeppni leggur maður líf og sál í þetta. Ég missti einbeitinguna, enda með athyglisbrest á háu stigi, gladdist of mikið og óð upp í stúkuna. Það á maður aldrei að gera. Ég átti að ganga til félaga og góðs vinar míns og taka í höndina á honum. Það klikkaði í þetta skiptið, ég er búinn að biðja hann afsökunar og geri það aftur núna.“