„Aldrei séð neitt eins og þetta“

LeBron James var öflugur í liði Cleveland í nótt.
LeBron James var öflugur í liði Cleveland í nótt. AFP

LeBron James var öflugur í liði Cleveland Cavaliers þega liðið sigraði Toronto Raptors, 132:129, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

LeBron James skoraði 35 stig, gaf 17 stoðsendingar og tók 17 fráköst.

„Ég hef aldrei séð neitt eins og þetta ef ég á að vera hreinskilinn. 17 fráköst, 35 stig og enginn tapaður bolti. Þetta er magnað,“ sagði Larry Drew astoðarþjálfari Cleveland en LeBron James tapaði aldrei boltanum í leiknum. Kevin Love var með 23 stig og tók 12 fráköst og George Hill 22. Kyle Lowry skoraði 24 stig fyrir Toronto.

Dwight Howard skoraði 32 stig og tók hvorki fleiri né færri en 30 fráköst fyrir Charlotte í sigri gegn Brooklyn Nets, 111:105.

Úrslitin í nótt:

Philadelphia - Memphis 119:105
Cleveland - Toronto 132:129
Charlotte - Brooklyn 111:105
Miami - New York 119:98
Denver - Chicago 135:102
New Orleans - Indiana 96:92
LA Clippers - Milwaukee 127:120
SA Spurs - Washington 98:90

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert