Körfuknattleikskonan Danielle Rodriguez hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna og mun leika áfram með liðinu í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik á næstu leiktíð en það er Karfan.is sem greinir frá þessu.
Danielle var algjör lykilmaður í liði Stjörnunnar og var með 29 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur. Stjarnan rétt missti af sæti í úrslitakeppninni en liðið hafnaði í 4.-5. sæti úrvalsdeildarinnar með jafn mörg stig og Skallagrímur Borgnesingar voru yfir á innbyrðisviðureignum og fóru því áfram í úrslitakeppnina.