Körfuboltamaðurinn Oddur Rúnar Kristjánsson hefur gengið til liðs við Val og skrifað undir tveggja ára samning á Hlíðarenda en það er Karfan.is sem greinir frá þessu.
Oddur Rúnar lék með Njarðvík á síðasta tímabili og hefur leikið með félögum á borð við Grindavík, ÍR og Stjörnunni í efstu deild.
Oddur fylgir fyrrverandi landsliðsmanninum Ragnari Nathanaelssyni á eftir sem einnig gekk til liðs við Val á dögunum frá Njarðvík.
Valsarar höfnuðu í 10. sæti Dominos-deildarinnar í fyrra en vinna nú hörðum höndum að því að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil.