Þurfum að vinna í okkar leik

Ólafur Ólafsson var að vonum svekktur með frammistöðuna og tapið gegn Njarðvík í kvöld þegar Grindvíkingar töpuðu á heimavelli, 79:90, í 6. umferð Dominos-deildar karla í körfuknattleik.

Ólafur sagði sína menn ekki hafa mætt nægilega tilbúna til leiks og að Njarðvíkingar hafi hitt gríðarlega vel úr skotum sínum.  Ólafur var því einnig sammála að ákveðinn doði hafi legið á hans liði þetta kvöldið og að þeir þurfi að halda áfram að vinna í sínum leik. 

Ólafur Ólafsson með boltann í leiknum í kvöld.
Ólafur Ólafsson með boltann í leiknum í kvöld. mbl.is/Skúli B. Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert