Harden frábær og sigurgangan stöðvuð

James Harden með boltann fyrir Houston.
James Harden með boltann fyrir Houston. AFP

James Harden átti sterkan leik, einu sinni sem oftar, þegar Houston Rockets batt enda á fimm leikja sigurgöngu Denver Nuggets í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Harden skoraði 32 stig og tók 14 fráköst fyrir Houston, en liðið var að vinna sinn 10. heimasigur í röð. Nikola Jokic skoraði 24 stig og tók 13 fráköst fyrir Denver, sem heldur þó toppsæti vesturdeildarinnar.

LeBron James er frá vegna meiðsla hjá Los Angeles Lakers sem vann Dallas Mavericks 107:97 þar sem Brandon Ingram skoraði 29 stig fyrir Lakers, það mesta frá honum í einum leik á tímabilinu.

Öll úrslit næturinnar má sjá hér að neðan.

Detroit Pistons – San Antonio Spurs 107:119
Boston Celtics – Brooklyn Nets 116:95
Houston Rockets – Denver Nuggets 125:113
Milwaukee Bucks – Utah Jazz 114:102
New Orleans Pelicans – Memphis Grizzlies 114:95
Dallas Mavericks – Los Angeles Lakers 97:107
Portland Trail Blazers – New York Knicks 111:101
Sacramento Kings – Orlando Magic 111:95

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert