Stórleikur á Hlíðarenda

Pétur Rúnar Birgisson og Ragnar Natanaelsson eigast við í deildarleik …
Pétur Rúnar Birgisson og Ragnar Natanaelsson eigast við í deildarleik Vals og Tindastóls á síðustu leiktíð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valur og Tindastóll mætast í 1. umferð bikarkeppni karla í körfuknattleik, Geysis-bikarnum, í Origo-höllinni á Hlíðarenda en dregið var 32-liða úrslitin í höfuðstöðvum KKÍ í Laugardal í dag.

Alls voru 25 lið í pottinum en Fjölnir B, Keflavík, Hrunamenn, Höttur, Sindri, Skallagrímur og bikarmeistarar Stjörnunnar sitja öll hjá í fyrstu umferðinni.

Ein önnur úrvalsdeildarviðureign er 1. umferðinni en Þór frá Akureyri fær Íslandsmeistara KR í heimsókn.

Leiknirnir fara fram dagana 11.-13. október næstkoandi.

Valur - Tindastóll
Þór frá Akureyri - KR
Hamar - Grindavík
ÍA - Þór frá Þorlákshöfn
Breiðablik - Njarðvík
Selfoss - Álftanes
Fjölnir - Haukar
Reynir frá Sandgerði - Vestri
KV - ÍR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert