Eignarhaldsfélagið Fengur hf. hefur aukið hlut sinn í Flugleiðum hf. úr 4,07% í 5,80%.
Fengur hefur keypt 40.000.000 kr. að nafnverði hlutafjár í Flugleiðum hf. á verðinu 1,70 kr. Eignarhlutur Fengs eftir viðskiptin nemur 5,80% eða 133.843.880 kr. að nafnverði, en var áður 4,07% eða 93.843.880 kr. að nafnverði. Pálmi Haraldsson, stjórnarmaður Flugleiða, er framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Fengs hf.