Össur kaupir franskt fyrirtæki á 9.227 milljónir króna

Össur hefur keypt franska fyrirtækið Gibaud Group fyrir um 132 milljónir Bandaríkjadala, 9.227 milljónir króna. Gibaud Group þróar og framleiðir stuðningstæki með sérstakri áherslu á spelkur og vörur til notkunar við blóðrásarmeðferðir (phlebology). Össur tekur við rekstri Gibaud Group frá og með deginum í dag.

Kaupin á Gibaud Group eru önnur stærstu fyrirtækjakaup Össurar og falla vel að þeirri stefnu félagsins að víkka út starfsemina á sviði stuðningstækja, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar segir í tilkynningu, kaupin mikilvægan áfanga í sókn Össurar inn á stuðningstækjamarkaðinn: „Kaupin eru mikilvægur áfangi fyrir okkur og í samræmi við stefnu félagsins um að sameina þennan markað. Með kaupunum fær Össur einnig aðgang að nýjum og mikilvægum hluta evrópska markaðarins, sem er fyrir vörur til notkunar við blóðrásarmeðferð, sem fellur vel að sölukerfum stuðningstækjafyrirtækja í Evrópu.”

Helstu vörulínur Gibaud Group eru spelkur og stuðningsvörur og vörur til notkunar við blóðrásarmeðferð. Stuðningstækjamarkaðurinn í Frakklandi er metinn á um 130 milljónir Bandaríkjadala og er Gibaud Group næst stærsta fyrirtækið með yfir 20% markaðshlutdeild.

Franski markaðurinn fyrir vörur til notkunar við blóðrásarmeðferð er einnig metinn á yfir 130 milljónir Bandaríkjadala. Gibaud Group er með yfir 10% markaðshlutdeild á þessum markaði og er þriðja stærsta fyrirtækið.

Sala Gibaud fyrir 12 mánaða tímabil sem endar 30. júní 2006 er 41,7 milljónir evra og EBITDA 21%. Áætlað er að gjaldfæra um 5 milljónir evra vegna endurskipulagningar í desember á þessu ári. Þar að auki er gert ráð fyrir að gjaldfæra 2 milljónir evra vegna birgða sem eru færðar upp í söluverð árið 2007. Gert er ráð fyrir að sala Gibaud á árinu 2007 verði um 44 milljón evra og EBITDA, án óvenjulegra liða, um 18%. Gibaud verður tekið inn í samstæðureikning Össurar þó svo að það verði rekið sem sjálfstæð eining í fyrstu og ekki samþætt samstæðunni á sama hátt og önnur fyrirtæki sem hafa verið keypt fram að þessu. Gibaud mun starfa sem sjálfstætt fyrirtæki, að minnsta kosti fyrstu 18 til 24 mánuðina og því er ekki reiknað með samlegðaráhrifum þann tíma.

Seljandi Gibaud er samsteypa fjárfestingasjóða sem er stýrt af Barclays Privat Equity. Sjóðirnir keyptu Gibaud árið 2001.

Banc of America veitti Össuri hf. ráðgjöf við kaupin. Kaupþing banki veitti ráðgjöf við fjármögnun kaupanna og brúarlán að upphæð 100 milljónir evra. Til uppgreiðslu brúarlánsins er gert ráð fyrir hlutafjárútboði á fyrri helmingi ársins 2007.

Áfram er gert ráð fyrir að sala ársins 2006 verði yfir 250 milljónir Bandaríkjadala. Reiknað er með að hagnaður Össurar fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) fyrir árið í heild verði um 19% (án kostnaðar vegna endurskipulagningar) Þetta er rétt undir því sem tilkynnt var við birtingu á afkomutölum eftir þriðja ársfjórðung 2006, sem var 20%.

Tilkynning til Kauphallar Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK