WOW vill reisa hótel í Kópavogi

Skúli Mogensen forstjóri WOW, vill opna WOW-hótel.
Skúli Mogensen forstjóri WOW, vill opna WOW-hótel. mbl.is/RAX

WOW air hefur óskað eftir lóð á Kársnesi í Kópavogi undir hótel ásamt ýmissi þjónustu tengdri þeirri starfsemi. Jafnframt hefur félagið áform um að reisa hótelíbúðir á hluta lóðarinnar tengdum rekstri og þjónustu hótelsins. 

Hótelið verður þá í nágrenni við fyrirhugaðar höfuðstöðvar fyrirtækisins. 

Erindi WOW var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Kópavogs í byrjun mánaðarins og hyggst Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, funda með Skúla Mogensen, forstjóra WOW, á föstudaginn og fara yfir málið.

WOW vill hraða viðræðum

WOW hefur óskað eftir því að viðræðum verði hraðað eins og kostur er, en að sögn Ármanns krefjast aðgerðir sem þessar deiliskipulagsbreytinga sem taka nokkra mánuði.

Hann segir málið vera á algjöru frumstigi og veit lítið annað en sem fram kemur í erindi WOW. „Þetta hljómar sem spennandi hugmynd og að sjálfsögðu er rætt við þá sem koma inn með slíkar hugmyndir,“ segir Ármann.

Stofnað félag um fasteignarekstur

Í erindi WOW er óskað eftir lóðum númer 29 og 50 við Vesturvör undir hótelið en lóð 38 undir höfuðstöðvarnar. Áður hafði verið rætt um aðra lóð fyrir höfuðstöðvarnar en WOW segir hana ekki henta sökum gildandi skipulagsmála og þess tímaramma sem WOW air hefur sett verkinu.

Líkt og mbl greindi frá í morgun hefur Skúli stofnað fasteignafélagið Tít­an Fast­eign ehf. en einkahlutafélag hans Tít­an ehf., held­ur utan um eign­ar­hlut Skúla í WOW.

Skúli Mogensen vildi ekki tjá sig um hóteláformin á Kársnesi þegar eftir því var leitað.

Stefnt á glæsilegar höfuðstöðvar

Ólíkt hóteláformunum er fyrirhuguðum höfuðstöðvum lýst nokkuð ítarlega í fyrra erindi WOW til Kópavogsbæjar. Þar segir að markiðið sé að byggja glæsi­leg­ar og nú­tíma­leg­ar höfuðstöðvar. Þar eigi að vera opin rými fyr­ir starfs­fólk og áhersla verður lögð á tengsl mann­virk­is­ins við sjáv­ar­síðuna og nátt­úr­una.

Hug­mynd­in er að í höfuðstöðvun­um verði opin veit­inga­sala og kaffitería með ókeyp­is netteng­ingu fyr­ir al­menn­ing. Í hús­inu eiga þá einnig að vera opin rými sem gætu nýst fyr­ir lista­sýn­ing­ar eða sam­bæri­lega menn­ing­ar­viðburði.

Frétt mbl.is: Skúli stofnar fasteignafélag

Efst á myndinni er lóðin sem WOW vill undir höfuðstöðvarnar. …
Efst á myndinni er lóðin sem WOW vill undir höfuðstöðvarnar. Til vinstri og að neðan eru lóðirnar sem ætlaðar eru undir hótelið og hótelíbúðirnar. Skjáskot af Google maps
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK