Landsvirkjun verður bakhjarl félagsins Kvenna í orkumálum til tveggja ára. Skrifað var undir styrktarsamning þess efnis í vikunni.
Félagið Konur í orkumálum var stofnað fyrr á árinu og telja félagsmenn nú um 200 talsins, samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun. Félagið er opið öllum þeim sem starfa við orkumál eða hafa áhuga á orkumálum á Íslandi. Tilgangur félagsins er að efla þátt kvenna í orkumálum og styrkja tengsl þeirra á milli, svo og að stuðla að menntun og fræðslu kvenna er varðar orkumál.
Harpa Pétursdóttir, lögfræðingur hjá BBA og formaður Kvenna í orkumálum, segir það vera mikið ánægjuefni að stjórnendur orkufyrirtækja á Íslandi virðist sammála um að ástæða sé til að auka hlut kvenna í geiranum.
Haft er eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar, í fréttatilkynningunni að full þörf sé á því að auka hlut kvenna innan orkugeirans og því er stofnun félagsins Konur í orkumálum fagnaðarefni. „Það er Landsvirkjun sérstaklega ánægjulegt að styrkja þennan góða félagsskap, sem hefur alla burði til þess að hafa jákvæð áhrif innan orkugeirans á komandi misserum og árum.“