Unnur Elfa Hallsteinsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á samkeppnishæfnisviði Samtaka atvinnulífsins. Hún hefur þegar hafið störf.
Unnur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands en hún starfaði áður hjá sendiráði Íslands í Brussel, EFTA og Fjármálaeftirlitinu.
Í tilkynningu frá SA segir að meistararitgerð Unnar í lögfræði hafi fjallað um samanburð á reglum ESB og EES réttar og reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um viðskipti með vörur. BA ritgerð hennar fjallaði um framsal ríkisvalds alþjóðastofnana með tilliti til Schengen samstarfsins.