Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur selt allan sinn hlut í Kjarnanum til móðurfélags Kjarnans. Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans hefur bæst við hluthafahópinn og á hún rétt tæplega 1% hlut.
Þetta kemur fram í frétt á vef Kjarnans. Þar segir að Ágúst Ólafur hafi keypt hlut í fjölmiðlinum árið 2014. Eftir að hafa tilkynnt um að hefja stjórnmálaþátttöku haustið 2017 hafi hann ákveðið í samráði við stjórnendur félagsins og aðra hluthafa að selja hlut sinn. Nú er sölunni lokið og átti Ágúst Ólafur 6,25% hlut í félaginu áður en hann seldi.
„Í fjölmiðlum hefur verið fjallað um að hlutur Ágústs Ólafs Í Kjarnanum hafi aukist milli áranna 2017 og 2018. Það gerðist í kjölfar þess að hluthafalán, sem veitt var vegna fjárfestinga á fyrri hluta ársins 2017, var breytt í hlutafé í byrjun árs 2018,“ segir í frétt Kjarnans.
„Því átti sú aðgerð sér stað töluvert áður en Ágúst Ólafur tilkynnti um þátttöku í stjórnmálum og náði kjöri sem þingmaður. Fjölmiðlanefnd hefur verið tilkynnt um breytingarnar líkt og lög gera ráð fyrir.“