Bjóða amerísk sjávarútvegslán

Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA.
Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við erum byrjaðir að markaðssetja sjóðinn til íslenskra fjárfesta og þar er verulegur áhugi, enda sjávarútvegur í Norður-Ameríku risastór og býður upp á áhugaverðan fjárfestingarkost í erlendri mynt,“ segir Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA, um fyrsta sjóðinn sem fyrirtækið setur á laggirnar í Bandaríkjunum. Sjóðurinn fjárfestir í lánum til sjávarútvegsfyrirtækja í Bandaríkjunum og Kanada.

„Síðar verður sjóðurinn markaðssettur til bandarískra fjárfesta og þannig munum við sameina íslenska og bandaríska fjárfesta í sjóð utan um þessa afurð, sem ég tel marka ákveðin tímamót.“

GAMMA er í samstarfi við fjárfestingarbankann Antarctica Advisors í verkefninu, en á bak við hann er teymi sem starfaði hjá Glitni í New York fyrir bankahrunið, meðal annars við þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki.

Rætt er við Valdimar Ármann í miðopnu ViðskiptaMoggans. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK