Fjarskiptafyrirtækið Comcast hefur gert tilboð í evrópska sjónvarpsrisann Sky að virði 22 milljarða punda, sem jafngilda 3.100 milljörðum íslenskra króna.
Þessu er greint frá á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC en þar segir að tilboðið sé sett til höfuðs tilboði 21st Century Fox sem nemur um 19 milljörðum punda. Disney gekk í desember frá kaupum á stórum hluta af 21st Century Fox fyrir 52,4 milljarða Bandaríkjadala. Murdoch-fjölskyldan var helsti hluthafinn í Fox og fékk greitt fyrir hlutinn í hlutabréfum í Disney.
Fox hefur lengi sóst eftir því að kaupa þann 61% eignarhlut sem það á ekki í Sky en samkeppnisyfirvöld í Bretlandi úrskurðuðu fyrr á árinu að yfirtakan væri ekki til hagsbóta fyrir almenning og að áhrif Murdoch-fjölskyldunnar í fjölmiðlum yrðu of mikil.
Hefur 21st Century Fox lagt til að sjónvarpsfréttastöðin Sky News verði seld til Disney til þess að tryggja það að yfirtakan gangi í gegn.
Sky dró meðmæli sín með tilboði Fox til baka eftir að Comcast skarst í leikinn og hafa hlutabréf í Sky hækkað um 3,4% síðan þá. Í tilkynningu um kaupin gaf Comcast út að tilboð sitt, sem nemur 12,5 pundum á hlut, væri 16% hærra en tilboð Fox, sem nemur 10,75 pundum á hlut.