WOW air flutti 237 þúsund farþega til og frá landinu í apríl eða um 9% fleiri farþega en í apríl árið 2017.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá WOW air. Sætanýting flugfélagsins var 91% í apríl í ár en var 88% í apríl 2017. Sætanýting jókst þrátt fyrir 8% aukningu á sætaframboði miðað við sama tímabil í fyrra. Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt um 895 þúsund farþega.
Greint var frá farþegatölum Icelandair í dag en farþegum félagsins fækkaði um 2% á milli ára. Þeim fjölgaði á N-atlantshafsmarkaðinum en fækkaði á ferðamannamarkaðinum til Íslands og heimamarkaðinum frá Íslandi.