Málverk eftir René Magritte var selt á 26,8 milljónir Bandaríkjadala, sem svarar til 3,3 milljarða króna, á uppboði Sotheby's í New York. Er þetta hæsta verð sem fengist hefur fyrir verk belgíska súrrealistans.
Málverkið Le principe du plaisir hafði verið metið á 15-20 milljónir dala fyrir uppboðið. Alls tóku sjö safnarar þátt í slagnum um að eignast verkið. Fyrra met Magritte var 17,9 milljónir Bandaríkjadala sem fengust fyrir verkið La corde sensible á uppboði í London í fyrra.
Fleiri verk á uppboðinu í gær voru seld á hærra verði en þau voru metin á fyrir fram. Má þar nefna verk eftir Wassily Kandinsky sem var selt á 24,2 milljónir dala en var metið á 15-20 milljónir fyrir fram.
Aftur á móti seldist ekki verkið sem talið var að færi á rúmlega 30 milljónir dala. Það er verkið Pre-War Pageant eftir Marsden Hartley og var áætlað verð fimm sinnum hærra en fengist hefur fyrir verk bandaríska listamannsins.